Jafnrétti – Róttækni – Heiðarleiki
Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, er stúdentahreyfing sem var stofnuð árið 1988. Grundvallarstefna Röskvu hefur alla tíð verið jafnrétti allra til náms, en kjörorð hreyfingarinnar eru jafnrétti, róttækni og heiðarleiki. Með þau gildi að leiðarljósi eru helstu baráttumál hreyfingarinnar umhverfis- og samgöngumál, hinseginmál, kynjajafnrétti, húsnæðismál, lánasjóðsmál og geðheilbrigðismál. Röskva leggur einnig áherslu á að hagsmunabaráttan takmarkist ekki við háskólann og lætur sig því varða hin ýmsu samfélagsmál er tengjast hagsmunum stúdenta.

Stefnumál Röskvu
Jafnrétti - Róttækni - Heiðarleiki
Hvað höfum við gert á árinu?
Röskva hefur ekki staðið auðum höndum á þessu starfsári og settum við fram um það bil helming allra tillaga í stúdentaráði. Hér eru dæmi um þau mál sem við höfum barist fyrir.
