Kosningar 2024
Hvenær er kosið?
Kosningar til Stúdentaráðs og háskólaráðs Háskóla Íslands eru haldnar miðvikudaginn 20. mars og fimmtudaginn 21. mars. Atkvæðagreiðslan er rafræn og fer fram á Uglunni. Hún verður ekki opin allan sólarhringinn, aðeins er hægt að kjósa kl. 9:00-20:00 á miðvikudaginn og kl. 9:00-18:00 á fimmtudaginn.
Hversu marga frambjóðendur má kjósa?
Það fer eftir sviðinu sem þú stundar nám við. Sviðin eru fimm: Félagsvísindasvið, Menntavísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið. Flest sviðin fá þrjá aðalfulltrúa og þrjá varafulltrúa í Stúdentaráð en fjölmennasta sviðið, Félagsvísindasvið, fær fimm aðal- og varafulltrúa. Samtals eru 17 fulltrúar frá öllum sviðum. Allir nemendur fá hins vegar að kjósa sömu framboð til háskólaráðs óháð sviðum. Stúdentar fá tvo fulltrúa í háskólaráð.
Hvernig virka rafrænar kosningar?
Þessa tvo daga mun birtast lítill gluggi inni á Uglunni sem hægt er að smella á. Valmöguleikarnir birtast sjálfkrafa. Þeir verða mismunandi eftir hverju sviði fyrir sig en það má aðeins kjósa frambjóðendur sem stunda nám á þínu sviði. Hægt er að setja atkvæði sitt við einn framboðslista eða velja einstaklinga úr mörgum framboðum.
Um hvað er kosið?
Stúdentaráð HÍ samanstendur af 17 kjörnum fulltrúum sem berjast fyrir réttindum og hagsmunum stúdenta, innan skólans sem utan. Stúdentaráð hefur fjölbreyttar skyldur og verkefni. Til að eitthvað sé nefnt samþykkir Stúdentaráð skipanir í stöður, sviðsráð og nefndir og kýs um lög og verklagsreglur stofnana undir SHÍ. Stúdentaráð er líka þrýstiafl á háskólann og ríkisstjórn og er rödd stúdenta út á við. Háskólaráði fer með æðsta ákvörðunarvald háskólans og allra stofnana sem heyra undir hann. Tveir fulltrúar stúdenta fá sæti við ráðið og sitja í tvö ár í senn.