FJÖLSKYLDUMÁL
Þriðjungur stúdenta á Íslandi eru foreldrar, sem er hæsta hlutfall foreldra í námi í Evrópu, samkvæmt niðurstöðum EUROSTUDENT VII könnuninnar frá árinu 2023. Röskva telur því sérstaklega mikilvægt að tillit sé tekið til fjölskyldufólks í Háskóla Íslands og að kjör þeirra séu tryggð til jafns við aðra hópa.
RÉTTUR ALLRA STÚDENTA TIL FÆÐINGARSTYRKS
Núgildandi lög um fæðingarorlof eru meingölluð varðandi rétt stúdenta. Það er ólíðandi að stúdentar erlendis, nýútskrifaðir stúdentar og önnur fái ekki í öllum tilvikum greitt úr Fæðingarorlofssjóði. Röskvu finnst mikið jafnréttismál að allir nýbakaðir foreldrar eigi fullan rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði í samræmi við grunnframfærsluviðmið.
HÆRRI FÆÐINGARSTYRKUR
Röskva vill að fæðingarstyrkur námsmanna frá fæðingarorlofssjóði sé hækkaður. Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi fá allir námsmenn sömu upphæð í fæðingarstyrk, óháð hjúskaparstöðu og fjölda barna. Röskva vill að tekið sé tillit til þessara þátta.
FJÖLSKYLDUVÆNN HÁSKÓLI
Röskva hefur lengi barist fyrir því að kennslustundum ljúki fyrir lokunartíma leikskóla. Það er ótækt að foreldrar geti ekki sótt kennslustundir vegna þess að ekki er tekið tillit til fjölskyldulífs við gerð stundaskráa. Í þeim tilvikum þar sem ekki er hægt að mæta þessum kröfum er t.d. hægt að leysa vandann með því að hafa upptökur af fyrirlestrum aðgengilegar á netinu. Þar að auki telur Röskva nauðsynlegt að í öllum byggingum Háskóla Íslands séu barnastólar og aðstaða til þess að skipta á börnum. Röskva mælist einnig til þess að Háma hefji sölu á barnamat.
FRAMFÆRSLA BARNA NÁMSMANNA Á AÐ VERA ÓHÁÐ NÁMSFRAMVINDU
Framfærsla barna námsmanna ætti ekki að vera háð námsframvindu foreldra. Ef foreldri nær ekki að ljúka lágmarks einingafjölda ætti að minnsta kosti hluti lána að vera greiddur út svo foreldri geti framfleytt barninu sínu þrátt fyrir misbresti í námi.
BARNEIGNIR EIGA EKKI AÐ HAFA ÁHRIF Á 30% NIÐURFELLINGU HJÁ MENNTASJÓÐI NÁMSMANNA
Í núverandi úthlutunarreglum Menntasjóðs námsmanna er ekki gert ráð fyrir því að stúdentar, sem eignast börn á þeim tíma sem þau þiggja námslán, fái aukið svigrúm til að fá 30% niðurfellingu á höfuðstól námslána að námi loknu. Röskva vill að stúdentar í þessari stöðu fái frekara svigrúm en almennar reglur sjóðsins gera ráð fyrir til að uppfylla skilyrði um niðurfellingu á höfuðstóli námslána.
HREIÐUR Á HÁSKÓLASVÆÐINU
Röskva vill að komið verði upp svo kölluðum Hreiðrum víða á Háskólasvæðinu þar sem næði væri fyrir stúdenta til þess að vera með börn sín. Þar væri rými til brjóstagjafa, bleyjuskipta, leiks o.fl.
RÝMI ÞAR SEM GERT ER RÁÐ FYRIR BÖRNUM STÚDENTA
Röskva vill að aðgengi fyrir barnafólk aukist á háskólasvæðinu. Það er mikilvægt að auðvelt sé að nálgast skiptiborð og að það sé auglýst hvar þau eru. Einnig þarf að gera ráð fyrir barnavögnum á háskólasvæðinu, t.d. á Háskólatorgi.
BARNVÆN LESRÝMI
Röskva vill að komið verði til móts við foreldra í námi með barnvænu lesrými, þar sem pláss væri fyrir vagna og leikaðstaða fyrir börn.
HÆRRI FRÍSTUNDASTYRKUR FYRIR BÖRN STÚDENTA
Röskva vill að börn stúdenta fái hærri frístundastyrk hjá sveitarfélögum. Stúdentar eru lágtekjuhópur en börn þeirra eiga ekki að gjalda fyrir það.
UPPLÝSINGAMIÐLUN TIL STÚDENTA MEÐ FJÖLSKYLDUR
Mikilvægt er að auka verulega aðgengi að upplýsingum um úrræði sem bjóðast stúdentum sem eiga fjölskyldur. Röskva telur að þessar upplýsingar eigi að vera aðgengilegar á Uglunni og að ábyrgð á uppfærslu þeirra væri hjá stjórnsýslu Háskóla Íslands.
HÆRRI MÓTFRAMLÖG SVEITARFÉLAGA TIL LEIKSKÓLA
Röskva vill að allir stúdentar við HÍ fái sömu niðurgreiðslu af leikskólagjöldum FS, óháð því hvar lögheimili þeirra er. Nú er töluverður munur á niðurgreiðslu á leikskólagjöldum hjá sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og því borga stúdentar við HÍ mishá leikskólagjöld við leikskóla FS eftir búsetu, t.d. borgar stúdent með lögheimili í Hafnarfirði hærri leikskólagjöld en stúdentar með lögheimili í Reykjavík.
HÚSNÆÐISÖRYGGI FJÖLSKYLDNA
Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi fá stúdentar sem eignast börn ekki sérstakar undanþágur. Námsframvinda foreldris ætti ekki að hafa áhrif á húsnæðisöryggi stúdenta í barneignum.